Það er 17.júní í dag og munum við halda hátíðlega upp á hann. Eftir morgunmat fórum við á fánahyllingu. Það er óhætt að segja að þetta hafi verið stærsta fánahylling sumarsins. Við flögguðum íslenska fánanum á sjö fánastöngum á sama tíma með íslenska þjóðsöngin í hátalarakerfinu. Þetta var gæsahúð fyrir allan peninginn. Eftir morgunstund var farið í skrúðgöngu frá Gamla skála og að íþróttahúsinu. Fyrir framan íþróttahúsið er falleg brekka. Við stoppuðum fyrir framan brekkuna og hlýddum á Fjallkonuna flytja ljóð eftir Margréti Jónsdóttur, Ísland er land þitt.

Seinna í dag verður svo boðið upp á hoppukastala, Wipeout, heita potta, kassabílarallý, fótbolta, frjálsar íþróttir, smíðaverkstæði og margt fleira.

Veðrið er aðeins betra í dag. Það er samt of hvasst til að fara á báta því miður. Við ætlum að skoða möguleikann á að bjóða upp á mótorbátsferðir svo að drengirnir komist eitthvað út á vatn.

Hér fyrir neðan er svo linkur á myndasíðu KFUM og KFUK á Íslandi. Það koma myndir inn á þessa síðu reglulega.

Matseðill 17.júní 2021

Morgunmatur: Kakó, nýbakað brauð og álegg

Hádegismatur: Vatnaskógar ávaxtasúrmjólk

Kaffitími: Nýbökuð, fánaskreytt súkkulaðikaka par excellence og kanillengjur

Kvöldmatur: Léttbankaðar Vínarsnitzelsneiðar með brúnni sósu, bökuðum kartöflum, salati, maís og grænum baunum, rauðkál og gos í bauk

Kvöldhressing: Ávextir og kex

 

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

Vatnaskógur 2021