Við vöktum drengina 8:30 í morgun.

Eftir hádegismat verður farið í Hremannaleikinn. Hermannaleikurinn virkar þannig að við skiptum hópnum í tvennt, 52 vs 52, og kallast liðin Oddverjar og Haukdælir. Oddverjar labba út í Oddakot og bíða þar eftir Haukdælum. Leikurinn gengur út á það að ná klemmum af öxl drengjanna í hinu liðinu. Ef þú missir þína klemmu þá þarft þú að fara aftur í bækistöðvar og ná í nýja klemmu. Liðið sem safnar fleiri klemmum vinnur leikinn.

Fyrir utan Hermannaleikinn hefur verið almenn dagskrá. Fótbolti, bátar, smíðaverkstæði, folf, íþróttahús, spil og margt fleira.

Það eru tvö afmælisbörn í dag, þeim verður gerð góð skil á eftir með söng og kökum og myndum.

Veður: Skýað, smá hafgola og 10 stiga hiti.

Matseðill

Morgunmatur: Kakó, brauð og álegg

Hádegismatur: Lasagna, hvítlauksbrauð og grænmeti

Kaffitími: Sjónvarpskaka, HLUNKAKÖKUR og ávextir

Kvöldmatur: Grjónagrautur, slátur og heimilisbrauð

Kvöldhressing: Ávaxtaveisla

Nýjar myndir eru komnar inn, við bætum svo við reglulega.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

Vatnaskógur 3.flokkur