Við vöktum drengina klukkan 9:00 í morgun, aðeins seinna en venjulega. Veisludagar eru oft aðeins lengri en hefðbundnir dagar í Vatnaskógi þannig að það er fínt að sofa örlítið lengur.

Í dag gerum við vel við okkur í mat, drykk og dagskrá. Eftir kaffitímann er foringjaleikurinn í fótbolta. Þá skorum við foringjarnir á drengina í fótbolta. Við skiptum þeim upp í tvö lið, stjörnulið og draumalið, og spila liðin sitthvorn hálfleikinn. Kvöldvakan í kvöld verður glæsileg. Það verður sungið, við munum heyra lokahlutann í frammhaldssögunni, sjáum nokkur leikrit og svo auðvitað Sjónvarp Lindarrjóður. Mikil gleði og spenna hjá drengjunum.

Núna eftir morgunstund verður boðið upp á brekkuhalup. Það er hefð fyrir því að hafa brekkuhlaup á Veisludegi.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Plokkfiskur par excellence

Kaffitími: Súkkulaðikaka, bananabrauð og ávextir

Kvöldmatur:  Léttbankaðar Vínarsnitzelsneiðar með brúnni sósu, bökuðum kartöflum, salati, maís og grænum baunum, rauðkál og og gos í bauk.

Kvöldkaffi: Ávextir og kex

Veisludagsmyndirnar koma inn reglulega.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

Vatnaskógur 3.flokkur