Í dag komu um 100 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á miðvikudaginn 30.júní. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 7. Við hvert borð er borðforingi sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.

Hér er ágætis veður, 10°C og skýjað. Allt gengur mjög vel. Þetta eru hressir og skemmtilegir drengir sem eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, skemmitlegir innleikir, bátar og að ógleymdir smíðastofunni. Rétt eins og íslenska úrvalsdeildin er komin af stað þá er svínadalsdeildin komin á fulla ferð hér í Vatnaskógi en í henni keppa borðin sín á milli. Mjög spennandi. Í kvöld verður svo kvöldvaka  að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Ævintýraflokkur 1 er rétt að byrja.

Maturinn

Hádegismatur: Kjötbollur, bakaðar kartöflur, grænmeti og brúnsósa

Kaffitími: Jógúrtkaka, kryddbrauð og ávextir

Kvöldmatur: Amerískur pastaréttur og hvítlauksbrauð

Kvöldkaffi: Mjólkurkex, pólókex, mjólk og vatn

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Gunnar Hrafn Sveinsson – Ævintýraforingi

Eiríkur Skúli Gústafsson – Innileikjaforingi

Ástráður Sigurðsson – Frjálsíþróttaforingi

Fannar Logi Hannesson – Bátaforingi

Benedikt Guðmundsson – Knattspyrnuforingi

Davíð Guðmundsson – Alhliðaforingi

Ísak Jón Einarsson – Lindarrjóðursforingi

Pétur Bjarni – Bátaforingi

Þeim til halds og trausts eru þeir Páll Ágúst Þórarinsson, Birkir Bjarnason, Matthías Guðmundsson og forstöðumaðurinn Hreinn Pálsson.

Eldhúsi og þrifum í Vatnaskógi stýrir ráðskonan Tinna Dögg Birgisdóttir. Henni til aðstoðar eru Sólveig Erla Erlingsdóttir, Bergdís Brynjarsdóddir, Gabríela Snót Schram og Sverrir Hákon Martinsson.

Þá eru Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11 og 12 alla daga.

Inn á þessa síðu munu svo koma myndir úr flokknum.

Meira síðar!

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

4.flokkur Vatnaskógur