Í Vatnaskógi í dag er þetta helst.

Drengirnir voru vaktir 9:00 í morgun, morgunmatur var 9:30 og morgunstund 10:00. Í kvöld er svo kvöldvaka með leikriti, framhaldssögu, hugleiðingu og söng. Við byrjum daginn saman, við endum daginn saman, þannig er það.

Eftir hádegi bjóðum við upp á fjallgönguferð fyrir þá sem vilja. Ferðinni er heitið upp á kambinn, fjallið beint á móti Vatnaskógi. Tveir starfsmenn Vatnaskógar munu sjá um gönguna, við áætlum að um 15-20 drengir fari með í ferðina.

Eftir hádegi og eftir kaffi munum við bjóða upp á vatnafjör, við munum draga þá sem vilja á tuðru um eyrarvatn með spíttbátinum okkar góða, mjög skemmtilegt allt saman.

Hið árlega skákmót hófst í dag. Þetta verður hörð keppni, engin spurning. Frábær íþrótt.

Í kvöld eftir kvöldkaffi verður svo poppað og mynd sett í tækið, MOVIE NIGHT!

Svo sofum við aðeins lengur á morgun en á morgun er veisludagur, síðasti heili dagurinn okkar hér í Vatnaskógi. Mikilvægt að vera vel sofinn fyrir þann dag.

Matseðill

Morgunmatur: Kakó, brauð og álegg

Hádegismatur: Kjúklingaleggir og franskar

Kaffitími: Hjónabandssæla, snúðar og ávextir

Kvöldmatur: Léttbankaðar vínarsnitsel sneiðar með bökuðum kartöflum, brúnni sósu og salati

Kvöldkaffi: Ávextir og kex

Myndir, myndir, sagði einhver myndir?

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

Vatnaskógur 7.flokkur