Von er á um 100 drengjum í sumarbúðirnar í Vatnaskógi föstudaginn 23. júlí og framundan er fimm daga skemmtidagskrá með öllu tilheyrandi.

Veðurspáin fyrir hvern flokk er alltaf jafn spennandi fyrir bæði starfsfólk og þátttakendur og fylgir hér uppfærð veðurspá fyrir næstu daga frá Páli Ágústi Þórarinssyni, veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.

Veður

Föstudagur 23. júlí (komudagur)
Hæg suðlæg átt í góðu skjóli frá Skóginum. Dálítil rigning eða skúrir og hiti  11 til 14 stig.

Laugardagur 24. júlí
Hvessir dálítið eftir kaffi, sunnan eða suðvestan 5-10 m/s. Betra skjól í skóginum en mögulega einhver blástur úti á í þróttavelli og vatninu. Rigning með köflum mest allan daginn. Hiti 9 til 13 stig.

Sunnudagur 25. júlí
Snýst í suðaustan- eða austanátt, 8-13 m/s fyrir hádegi en dregur síðan aðeins úr. Lágskýjað og rigning allan daginn. Hiti breytist lítið.

Mánudagur 26. júlí (veisludagur)
Norðan eða norðaustan 3-8 m/s, en hvassara úti á vatni. Styttir upp aðfaranótt mánudags og fer að birta til en kólnar aðeins. Hiti 7 til 11 stig.

Þriðjudagur 27. júlí (brottfarardagur)
Útlit fyrir suðvestlæga eða breytilega átt og bjart veður. Hlýnar dálítið milli daga.

Uppfærsla á spá daglega svo ákveðnir þættir geta breytst eitthvað. Einkum þegar liðið er á spátímann (mánudagur og þriðjudagur).

Dagskrá fyrsta dags

Þegar drengirnir koma á staðinn er þeim vísað inn í matsal þar sem þeir velja sér tiltekið borð frá 1-7. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgir borðforingi sem sér um eftirlit yfir sínu borði og er til staðar fyrir drengina.

Eftir hádegi og út daginn verður pökkuð dagskrá fyrir drengina. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, báta og smíðaverkstæðið, frjálsíþróttakeppnin, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira, að ógleymdri Svínadalsdeildinni, knattspyrnumótinu fræga.

Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt framhaldssögunni um þá Harrý Rögnvalds og Heimi Schnitzel.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Eiríkur Skúli Gústafsson – 1. borð – Yfirforingi
Benjamín Jafet Sigurðarson – 2. borð – Knattspyrnuforingi
Pétur Bjarni Sigurðarson – 3. borð – Frjálsíþróttaforingi
Ríkharður Esterarson – 4. borð – Bátaforingi
Brynjar Karl Guðmundsson – 5. borð – Útileikjaforingi
Hálfdán Helgi Matthíasson – 5. borð – Útileikjaforingi
Davíð Guðmundsson – 6. borð – Innileikjaforingi
Benedikt Guðmundsson – 7. borð – Bátaforingi
Þráinn Andreuson – Alhliðaforingi

Þeim til halds og trausts er undirritaður, forstöðumaðurinn Gunnar Hrafn Sveinsson.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir ráðskonan Tinna Dögg Birgisdóttir. Innan hennar sviðs starfa þær Birta Líf Hannesdóttir, Dagný Guðmundsdóttir, Eva Sigurðardóttir og Sigríður Sól Ársælsdóttir.

Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Baltasar, Nói, Ragnar, Siggi, Tómas og Tristan.

Þá er Þórir Sigurðsson í flokknum en hann kemur að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að lokum er einn starfandi vinnumaður í flokknum, hann Hreinn Pálsson, sem kemur til með að sinna hinu og þessu, slá grasið og þar fram eftir götunum.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Matseðill dagsins

Hádegisverður: Hakkbollur með kartöflum, salati og brúnni sósu
Nónhressing: Kryddbrauð og jógúrtkaka
Kvöldverður: Pylsupizzupasta eða PPP
Kvöldhressing: Ávextir

Nokkur orð um heimþrá

Í tæplega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu:

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Gunnar Hrafn Sveinsson, forstöðumaður.