Annað árið í röð hafa Skógarmenn KFUM, sem reka sumarbúðir í Vatnaskógi, tekið þá ákvörðun að aflýsa Sæludögum í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina. Sæludagar eru fjölskylduhátíð í anda sumarbúða KFUM og KFUK sem haldin hefur verið í Vatnaskógi samfellt frá 1992.

Í ljósi nýjustu samkomutakmarka stjórnvalda er það mat stjórnar Skógarmanna KFUM að ekki sé lengur forsvaranlegt að halda fyrirhugaða fjölskylduhátíð. Uppbygging og starfsemi Vatnaskógar byggist að miklu leyti á framlögum sjálfboðaliða í verkefnum líkt og Sæludögum.

Við erum þakk­lát þeim fjöl­mörgu aðilum sem hafa und­an­farna daga staðið í ströngu við undirbún­ing hátíðar­inn­ar sem og þeim sem höfðu tryggt sér þá aðgöngumiða á hátíðina. Skógarmenn munu að sjálf­sögðu að fullu end­ur­greiða aðgöngu- og gi­sti­kostnað sem þátttakend­ur hafa greitt en eru einnig þakk­lát þeim sem myndu vilja styðja við starf­sem­ina.

Upplýsingar um endurgreiðslu á aðgöngumiðum og gistingu innanhús verða kynntar hér á vefnum í næstu viku.