Það er góður dagur hér í Vatnaskógi í dag. Veðurspáin segir að hér sé rigning en í alvörunni er sól. Það er nóg af dagskrátilboðum í allan dag og svo hópakeppni þar sem hóparnir keppa sín á milli.

Eftir kvöldvöku í gær fórum við í stórskemmtilegan leik sem heitir Vatnaskógur Escape en leikurinn er ratleikur með smá twisti. Þátttakendur eiga leysa þrautir á nokkrum stöðum án þess að gæslumennirnir nái að klukka þá. Ef að gæslumaður nær að klukka þig þá ertu úr leik, GAME OVER! Aftur á móti ef þú nærð að leysa allar þrautirnar og komast í endamark án þess að vera náð þá vinnur þú. Unglingarnir voru mjög ánægð með leikinn.

 

Matseðill

Morgunmatur: Rjómalagað kakó og brauð með áleggi.

Hádegismatur: Plokkfiskur og rúgbrauð.

Kaffitími: Kókoskúlur, döðlubrauð og eplakaka.

Kvöldmatur: Vatnaskógar ávaxtasúrmjólk og nýbakað brauð.

Kvöldhressing: Ávextir og kex.

Nýjar myndir koma inn reglulega.

Vatnaskógur Unglingaflokkur