Þriðji dagur flokksins er gengin í garð og óhætt að segja að það er pökkuð dagskrá framundan. Bátar, smíðaverkstæði, hástökk, knattspyrna, íþróttahús, spil í birkisal, listakeppni og margt fleira. Drengirnir eru duglegir að finna sér eitthvað að gera í frjálsatímanum og það er gott, flottur hópur. Á kvöldvökunni í kvöld verður leikrit, framhaldssaga, söngur og að auki hæfileikasýning. Á hæfileikasýningunni geta þeir sem vilja sýnt hvaða þá hæfileika sem þeir kunna að búa yfir eins og t.d. söngur, hljóðfæraleikur, leikrit, brandari eða eitthvað annað. Veðrið er gott í dag, 12-14 stiga hiti, skýað og logn. Við kveiktum á heitupottunum í gær og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá drengjunum, þeir verða opnir áfram í dag.

Eftir hádegismat verður farið í Hremannaleikinn. Hermannaleikurinn virkar þannig að við skiptum hópnum í tvennt, 53 vs 53, og kallast liðin Oddverjar og Haukdælir. Oddverjar labba út í Oddakot og bíða þar eftir Haukdælum. Leikurinn gengur út á það að ná klemmum af öxl drengjanna í hinu liðinu. Ef þú missir þína klemmu þá þarft þú að fara aftur í bækistöðvar og ná í nýja klemmu. Liðið sem safnar fleiri klemmum vinnur leikinn.

Merkilegur atburður átti sér stað í morgun, þegar drengirnir vöknuðu voru þeir allir orðnir að Skógarmönnum en það gerist þegar einstaklingur hefur dvalið tvær nætur í Vatnaskógi. Þar með eru þeir komnir í hóp tugþúsunda Íslendinga sem geta kallað sig Skógarmenn.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Kjötbollur, kartöflumús, brún sósa og salat

Kaffitími: Eplakaka og snúðar

Kvöldmatur: Skyr og brauðbollur

Kvöldhressing: Ávextir og kex.

Nýjar myndir koma inn í dag.

Vatnaskógur 11.flokkur