Þá er veisludagur runninn upp, síðasti heili dagurinn í Vatnaskógi. Á döfinni er mikil skemmtun út allan daginn og langt fram eftir kvöldi, en áður en lengra er haldið skal tekið fram að þetta mun verða seinni fréttin sem verður skrifuð, þannig endilega lesið hana til enda þar sem koma munu fram upplýsingar um brottfarardaginn.

Dagskrá veisludags

Eftir hádegismat munu borðin sem drengirnir sitja við taka þátt í forkeppni fyrir biblíuspurningakeppnina sem haldin verður á veislukvöldvökunni en tvö stigahæstu borðin keppa þar til úrslita. Brekkuhlaupið var haldið fyrir hádegi og spjótkast eftir hádegi. Kassabílarall í fullum gangi og smíðaverkstæðið og bátar opið fyrir hádegi en bátar eru hvíldir eftir hádegi vegna þess að nú komin allnokkur gola út á vatni þótt það sé prýisveður á staðnum. Auk þess er íþróttahúsið opið og heitir pottar opnir e. kaffi. Eftir kaffi verður meðal annars boðið uppá skógarferð í skógarkofa Vatnaskógar og grillaðir sykurpúðar smakkaðir. Að lokum verður stórleikur milli Draumaliðs drengja í knattspyrnu sem etja kappi við ógnarsterkt liði Foringja, sem sjaldan hefur státað af jafn miklum gæðum – sjáum hvernig fer!

Um kvöldið verður veislumatur og í framhaldi veislukvöldvaka, sem er talsvert lengri en fyrri kvöldvökur, með mörgum skemmtilegum uppákomum, bikaraafhendingu og tilheyrandi hlátrasköllum.

Matseðill

Morgunmatur: Hlaðborð, keitt kakó og brauð,  Corn flex cherrios

Hádegismatur: Lasagne

Kaffitími: Gulrótarkaka bananabrauð og kókosbollur

Kvöldmatur:  Vínar Snitzel með brúnni sósu, bökuðum kartöflum, salati, maís og grænum baunum, rauðkál og gos baukur frá Ölgerðinni

Kvöldhressing: Ávextir og kex

Dagskrá brottfarardags, 22.ágúst

Drengirnir hafa verið vaktir kl. 08:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala kl. 09:00. Morgunmatur og hefðbundin dagskrá fyrir hádegi, eftir hádegi er pakkað í töskur, fundið dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki áður en haldið verður í síðdegiskaffi og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.

Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 16:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 17:00.

Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 15:45. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.

Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Vatnaskógarpizzur

 

MYNDIR: FLEIRI MYNDIR HÉRNA!

Þetta er seinni færslan frá aukaflokki 2021. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 11. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.