Þriðji dagur flokksins er gengin í garð og óhætt að segja að það er pökkuð dagskrá framundan. Bátar, smíðaverkstæði, hástökk, knattspyrna, íþróttahús, spil í birkisal, listakeppni og margt fleira. Á kvöldvökunni í kvöld verður leikrit, framhaldssaga, söngur og að auki hæfileikasýning. Á hæfileikasýningunni geta þeir sem vilja sýnt hvaða þá hæfileika sem þeir kunna að búa yfir eins og t.d. söngur, hljóðfæraleikur, leikrit, brandari eða eitthvað annað. Það er skýjað í dag, logn og þurrt. Við höfum áfram kveikt á heitupottunum í dag, óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá drengjunum að kíkja í pottinn.
Einnig munum við bjóða upp á víðavangshlaup í dag en í því hlaupi er hlaupið hringinn í kringum vatnið, 4,2 km. Þetta er alltaf vinsæll dagskráliður. Svo munu bátaforingjar okkar bjóða upp á mótorbátsferðir á Eyrarvatni, eflaust margir sem munu taka þátt.
Merkilegur atburður átti sér stað í morgun, þegar drengirnir vöknuðu voru þeir allir orðnir að Skógarmönnum en það gerist þegar einstaklingur hefur dvalið tvær nætur í Vatnaskógi. Þar með eru þeir komnir í hóp tugþúsunda Íslendinga sem geta kallað sig Skógarmenn.
Matseðill
Morgunmatur: Rjómalagað kakó og nýbakað brauð með áleggi.
Hádegismatur: Lambagúllas í brúnnisósu, kartöflumús og grænmeti.
Kaffitími: Eplakaka, HLUNKAKÖKUR og bollur.
Kvöldmatur: Grillaðar pylsur!
Kvöldhressing: Mjólkurkex, pólókex, mjólk og vatn.
Nýjar myndir eru komnar inn, við bætum svo við reglulega.
Hreinn Pálsson – Forstöðumaður