Drengirnir voru vaktir klukkan 9:00 í morgun með ljúfum tónum. Í dag bjóðum við upp á hefðbundna dagskrá að mestu leiti eins og t.d. báta, fótbolta, smíðaverkstæði, íþróttahús, frjálsaríþróttir og spil í Birkisal. Því miður er ekkert bátaveður í dag. Hér er sterk norðaustanátt sem kælir mikið og tekur bátana úr umferð. Vonum að þessu fari að linna. Í kvöld verður boðið upp á allskonar stöðvar þar sem spennandi dagskrá fer fram. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Í gærkvöldi fór fram æsispennandi DODGEBALL keppni milli borðanna. Þetta byrjaði allt í kvöldkaffinu þegar borðforingjarnir fóru að metast sín á milli um hver væri með besta borðið. Það sauð allt uppúr og að lokum var ákveðið að útkljá þetta í DODGEBALL leik. Ekki veit ég hver vann, enda skiptir það engu máli, en drengirnir elskuðu þetta.
Matseðill
Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk.
Hádegismatur: Tortilla með öllu.
Kaffitími: Kaka, kanilsnúðar og bananabrauð.
Kvöldmatur: Skyr og nýbakað brauð.
Kvöldkaffi: Ávextir og kex.
Nýjar myndir komnar inn.
Hreinn Pálsson – forstöðumaður