Nú er liðinn veisludagur í Vatnaskógi. Á döfinni var mikil skemmtun allan daginn og langt fram eftir kvöldi, en áður en lengra er haldið skal tekið fram að þetta mun verða síðasta fréttin sem verður skrifuð, þannig endilega lesið hana til enda þar sem koma munu fram upplýsingar um brottfarardaginn.

Dagskrá veisludags

Eftir morgunstund tóku borðin (þ.e.  drengirnir sitja við borðin) þátt í forkeppni fyrir biblíuspurningakeppni sem haldin var á veislukvöldvökunni en tvö stigahæstu borðin kepptu svo þar úrslita. Brekkuhlaup, langstökk, kassbílarall, hoppukastlar, heitir pottar, innimót í íþrótthúsi, hoppukastlar, vatnafjör og smíðastofa eru meðal þess sem í boði var í dag. Í fótboltanum var stórleikur milli Stjörnu- og Draumaliðs drengja í knattspyrnu, sem keppa sitthvorn hálfleikinn gegn ógnarsterku liði Foringja, en eftir jafnan leik höfðu þeir eldri sigur!

Um kvöldið var veislumatur og í framhaldi veislukvöldvaka, sem var talsvert lengri en fyrri kvöldvökur, með mörgum skemmtilegum uppákomum og tilheyrandi hlátrasköllum.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk.

Hádegismatur: Hlaborð af ýmsum mat, kjötbollur, pasta og plokkfiskur.

Kaffitími: Súkkulaðikaka, pizzasnúðar og kanillengjur.

Kvöldmatur:  Vínar Snitzel með brúnni sósu, bökuðum kartöflum, salati, maís og grænum baunum, rauðkál og gos baukur frá ölgerðinni.

Kvöldhressing: Mjólk/vatn og kex.

Dagskrá brottfarardags, 5.júní

Drengirnir hafa verið vaktir kl. 08:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala kl. 09:00, þá munu drengirnir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki áður en haldið verður í hádegismat og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.

Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.

Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:45. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.

Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK. ATH. við munum reyna að koma óskilamunum fyrir á stéttina við inngang félagsheimilssins endilega kannið hvort eitthvað leynist það.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Vatnaskógarpizzur

Þetta er síðasta færslan frá 5. flokki 2022. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 5. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Myndir frá veisludegi koma hingað inn.