Í dag komu um 90 unglingar í Vatnaskóg. Þegar við komum byrjuðum við á því að fara inn í matskálann og fara yfir reglurnar. Eftir yfirferð á reglum fóru allir yfir í Birkiskála að finna sér herbergi og koma sér fyrir. Það verður boðið upp á allskonar dagskrá í dag eins og t.d. smíðaverkstæði, listasmiðju, íþróttahús og frjálsíþróttagreinar, gönguferðir og spil, knattspyrna og billjardmót. Þetta og fleira verður í boði í dag. Í kvöld verður svo kvöldvaka að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Matseðill

Hádegismatur: Kjúklingaleggir, kartöflur, sósa og salat.

Kaffitími: Bananabrauð og jógúrtkaka.

Kvöldmatur: Rjómalöguð blómkálssúpa og nýbakað brauð.

Kvöldkaffi: Ávaxtaveisla.

Starfsfólk

Hér í unglingaflokki erum við með úrvalslið foringja sem annast dagskrá og umönnun unglinganna en það eru þau Pétur Bjarni Sigurðarson, Þórdís Hafþórsdóttir, Fannar Logi Hannesson, Davíð Guðmundsson, Mirra Kristín Ólafsdóttir, Einar Aron Fjalarsson og Benedikt Guðmundsson. Þeim til halds og trausts eru forstöðumennirnir Gunnar Hrafn Sveinsson og Hreinn Pálsson.

Eldhúsi og þrifum stýrir Hreiðar Örn Zoega Stefánsson en honum til aðstoðar eru þau María Rut Arnarsdóttir, Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir, Eva Sigurðardóttir, Sigríður Sól Ársælsdóttir og Ragnar Bjarni Zoega Hreiðarsson.

Svo eru þeir Ísak Jón Einarsson og Þórir Sigurðsson staðarráðsmenn í Vatnaskógi og sjá um almennt viðhald á staðnum og sinna ýmsum öðrum mikilvægum verkefnum.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið bara athuga stöðuna þá er ykkur velkomið að hringja í forstöðumann flokksins í síma 433-8959

Myndir koma inn á linkinn hér reglulega.

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

Vatnaskógur