Þetta er búið að vera frábær flokkur, yndislegir unglingar.

Aðeins um brottfarardaginn. Það eru brottför frá Vatnaskógi beint eftir síðbúinn hádegisverð eða klukkan 14:00. Áætluð koma í bæinn er 15:00 að Holtavegi 28. Þeir sem ætla að sækja þátttakendur í Vatnaskóg eru vinsamlegast beðnir um að láta vita í síma 433-8959 fyrir klukkan 12:30

Nýjar myndir eru komnar inn.

Þetta er síðasta færslan frá unglingaflokki 2022. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við unglingaflokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

Vatnaskógur