Í gær mættu 108 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á föstudaginn 19.ágúst. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 7. Við hvert borð er borðforingi sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.

Hér er veður, hið besta  í gær var 13 stiga hiti, bjart og sólarglæta.  Í er logn og nánast heiðskýrt a.m.k. fyrir hádegi. Allt gengur mjög vel. Þetta eru hressir, skemmtilegir og margir vanir Vatnaskógi. Þeir eru eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, skemmitlegir innleikir, bátar og að ógleymdir smíðastofunni. Þá er svínadalsdeildin í knattspyrnu komin á fulla ferð hér í Vatnaskógi en í henni keppa borðin sín á milli. Mjög spennandi. Á kvöldin eru kvöldvökur  að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Morgundagurinn:
Á morgun þann 17. ágúst verður hátíð hér í Vatnaskógi þá mun kl. 16:30 verða tekin 1. skóflustunga af nýjum Matskála í Vatnaskógi. Við eigum von á gestum í tilefni meðal annars Biskup Íslands, Alþingismenn og Mennta- og barnamálaráðherra. Dagskráin hjá drengjunum mun þó halda sínu striki en þeir eru að sjálfsögðu velkomnir að vera viðstaddir þessi tímamót.

Matseðill (mánudagur)

Hádegismatur: Fiskur í raspi, kartöflur, sósa og salat.

Kaffitími: Bananabrauð og jógúrtkaka.

Kvöldmatur: pasta og hvítlauksbrauð

Kvöldkaffi: Ávextir.

 

Matseðill (þriðjudagur)

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Lasagne, brauð og salat.

Kaffitími: Eplakaka og Pizzasnúðar.

 

 

Nokkur orð um heimþrá

Í rúmlega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Ögmundur Ísak Ögmundsson, 1. borð – Innleikjaforingi

Benjamín Jafet Sigurðsson, 2. borð – alhliðaforingi

Davíð Guðmundsson, 3. borð – Bátaforingi

Örnólfur Sveinsson, 4. borð – Knattspyrnuforingi

Nói Pétur Ásdísar- og Guðnason, 5. borð – Útileikjaforingi

Hálfdán Helgi Matthíasson, 6. borð – Frjálsíþróttaforingi

Jakob Freyr Einarsson, 7. borð – Bátaforingi

Þeim til halds og trausts eru Þorsteinn Arnórsson og forstöðumaðurinn Ársæll Aðalbergsson.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir ráðskonan Valborg Rut Geirsdóttir. Í eldhúsinu starfa einnig Hrafnhildur Guðmundsdóttir, María Margrét Gísladóttir, Sigríður Sól Ársælsdóttir og Sverrir Hákon Marteinsson og auk þeirra er Gunnar M Sanholt vélstjóri á uppþvottavélinni (hluta vikunnar).

Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð með börnunum, uppvask, eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þau Bríet og Hallur.

Þá eru Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Auk þeirra eru þeir Jóhann Jónsson og Sigurður Stefánsson í sérstöku viðhaldsverkefni í íþróttahúsi og Albert E. Bergsteinsson sem sinnir útiverknum eins og að slá grasið og skógrækt.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

 

MARGIR BÍÐA EFTIR MYNDUM MUNUM BIRTA NOKKRAR HÉR