Þá er fjórði og jafnframt síðasti heili dagur 13. flokks í Vatnaskógi liðinn, veisludagur. Á döfinni var mikil skemmtun út allan daginn og langt fram eftir kvöldi, en áður en lengra er haldið skal tekið fram að þetta mun verða síðasta fréttin sem verður skrifuð, þannig endilega lesið hana til enda þar sem koma munu fram upplýsingar um brottfarardaginn.

Dagskrá veisludags

Eftir hádegismat tóku borðin sem drengirnir sitja við taka þátt í forkeppni fyrir biblíuspurningakeppnina sem haldin var á veislukvöldvökunni en tvö stigahæstu borðin kepptu þar til úrslita. Brekkuhlaupið var síðasta frjálsíþróttagreinin í flokknum. Þythokkýmót klárast fyrripart dagsins, þá verða bátarnir og smíðaverkstæðið opið eins og venju samkvæmt, ásamt íþróttahúsinu og heitum pottum. Eftir hádegi er áætlaður stórleikur milli Stjörnu- og Draumaliðs drengja í knattspyrnu, sem keppa sitthvorn hálfleikinn gegn ógnarsterku og ósigruðu liði foringja sem mörðu sigur að þessu sinns!

Um kvöldið var veislumatur og í framhaldi veislukvöldvaka, sem er talsvert lengri en fyrri kvöldvökur, með mörgum skemmtilegum uppákomum og tilheyrandi hlátrasköllum.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk.

Hádegismatur: Skyr og brauð.

Kaffitími: Kaka, kryddbrauð og kleinur

Kvöldmatur:  Vínar Snitzel sneiðar með brúnni sósu, bökuðum kartöflum, salati, maís og grænum baunum, rauðkál og gos baukur.

Kvöldhressing: kex.

Dagskrá brottfarardags, 19.ágúst

Haninn mun því gala kl. 09:00, þá munu drengirnir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki áður en haldið verður í hádegismat og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.

Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.

Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:45. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.

Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.

Matseðill Brottfarardags

Morgunmatur: Morgunkorn, súrmjólk og hafragrautur.

Hádegismatur: Vatnaskógarpizzur

Þetta er síðasta færslan frá 13. flokki 2022, sem er síðasti flokkur sumarsins. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 13. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Ársæll Aðalbergsson, forstöðumaður.

 

Myndir bættust við!