Nú líður að lokum hjá okkur í 7. flokki. Drengirnir hafa staðið sig með stakri prýði og koma heim með gott veganesti úr Vatnaskógi. Margir sigrar í þessum flokki, þeir eru allir sigurvegarar.

Við, starfsfólk Vatnaskógar, þökkum það traust sem okkur er sýnt þegar foreldrar senda börnin sín í sumarbúðir og tökum það nærri okkur og gerum okkar besta til að börnin fái að njóta sín. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 6.flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

 

Upplýsingar um brottfarardaginn

Rútan fer frá Vatnaskógi klukkan 14:00

Áætluð heimkoma á Holtaveg 28 er klukkan 15:00

Fyrir þá sem verða sóttir upp í Vatnaskóg þá er mikilvægt að vera mætt fyrir klukkan 13:30

Mikilvægt er að láta vita fyrir klukkan 11:00 á brottfarardag ef að drengur verður sóttur, þ.e.a.s. ef það var ekki búið að láta vita af því áður.

 

Myndir frá veisludegi koma senn á myndasíðuna.

 

Kærar þakkir,

f.h. starfsfólks Vatnaskógar,

Matthías forstöðumaður