Þá er þriðji dagur ævintýraflokks 2 genginn í garð. Hingað til hefur verið nóg að gera hjá drengjunum í útileikjum, frjálsumíþróttum, bátum, smíðaverkstæði, hjólabílum, listakeppni og mörgu öðru. Fyrir utan okkar hefðbundnu dagskrá var spilaður æsispennandi dodgeball-leikur milli borðanna. Borð 4 hafði sigurinn. Í gær var fínasta veður þannig við buðum upp á að hoppa og synda í vatninu, heitu pottarnir opnir aðsjálfsögðu. Í dag er einnig ágætis veður svo að við munum bjóða upp á vatnafjör áfram.

Merkilegur atburður átti sér stað í morgun, þegar drengirnir vöknuðu voru þeir allir orðnir Skógarmenn en það gerist þegar einstaklingur hefur dvalið tvær nætur í Vatnaskógi. Þar með eru þeir komnir í hóp tugþúsunda Íslendinga sem geta kallað sig Skógarmenn.

Í dag er von á bubblebolta hingað upp í Skóg og svo í kvöld verður boðið upp á að gista úti fyrir þá sem vilja. Þá förum við út í skóg og gistum undir berum himni, alltaf vinsælt.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn, súrmjólk, kakó, brauð og álegg.

Hádegismatur: Plokkfiskur og rúgbrauð.

Kaffitími: Kanilsnúðar, kryddbrauð og súkkulaðikaka.

Kvöldmatur: Kjúklingaréttur og salat.

Kvöldkaffi: Ávextir – Epli, banani, appelsína

 

Nýjar myndir eru komnar inn.

Vatnaskógur