Þá er veisludagur genginn í garð. Framundan er brekkuhlaup, úrslitaleikir í öllum mótum og svo loks foringjaleikurinn en í honum keppir úrvalslið foringja á móti stjörnu- og draumaliði drengjanna. Hér er sól og gott veður!

Kamburinn, fjallið á móti Vatnaskógi, var sigrað í gær. 15 drengir fóru alla leið upp á topp. Einnig var í boði að gista úti í nótt og voru 40 drengir sem skelltu sér í það ævintýri.

Matseðill

Morgunmatur: Rjómalagað kakó og nýbakað brauð.

Hádegismatur: Spagetti bologneze eða íslenskt skyr – drengirnir velja.

Kaffitími: Glæsileg kaka, smákökur og kjallarabollur.

Kvöldmatur: Vínarsnitzel, gular-grænar og rauðkál, kartöflur og gos í bauk.

Kvöldkaffi: Ávextir, kex og sykurpúðar við fjöruvarðeldinn.

 

Nýjar myndir komnar inn.

Vatnaskógur