Von er á rúmlega 100 drengjum í sumarbúðirnar í Vatnaskógi mánudaginn 15. júlí og framundan er fimm daga skemmtidagskrá með öllu tilheyrandi.

Veðurspáin fyrir hvern flokk er alltaf jafn spennandi fyrir bæði starfsfólk og þátttakendur og fylgir hér uppfærð veðurspá fyrir næstu daga frá Páli Ágústi Þórarinssyni, veðurfræðingi og doktorsnema í Danderyd í Svíþjóð.

Veður

Mánudagur 15. júlí (brottfarardagur)
Á mánudag býður Skógurinn upp á bjartan, fallegan og sólríkan dag. Í hægri breytilegri átt mun hitinn síðan ná allt að 15 til 17 stigum síðdegis.

Þriðjudagur 16. júlí
Búist er við hægri vestlægri átt á þriðjudaginn, að mestu skýjuðu og um 10 stiga hita. Þurrt að kalla þar til seint fram á kvöld.

Miðvikudagur 17. júlí
Hæg breytileg átt og skýjað að mestu á miðvikudag með lítilsháttar súld eða rigningu. Hiti allt að 16 stigum yfir daginn.

Fimmtudagur 18. júlí (veisludagur)
Á fimmtudag. Skýjað og dálítil rigning. Hægur vindur og hiti 8 til 13 stig.

Föstudagur 19. júlí (heimkomudagur)
Búast má við keimlíku veðri og á fimmudeginum en þó eilítið meiri líkur á sól þegar líður á daginn.

Dagskrá fyrsta dags

Þegar drengirnir koma á staðinn er þeim vísað inn í matsal þar sem þeir velja sér tiltekið borð frá 1-8. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgir borðforingi sem sér um eftirlit yfir sínu borði og er til staðar fyrir drengina.

Eftir hádegi og út daginn verður pökkuð dagskrá fyrir drengina. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, báta og smíðaverkstæðið, frjálsíþróttakeppnin, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira, að ógleymdri Svínadalsdeildinni, knattspyrnumótinu fræga.

Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt framhaldssögunni um þá Harrý Rögnvalds og Heimi Schnitzel.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Tristan Enok Kvaran Guðjónsson – Bátaforingi – 1. borð 
Jón Baldvin Magnússon – Frjálsíþróttaforingi – 2. borð
Brynjar Karl Guðmundsson – Innileikjaforingi – 3. borð
Hálfdán Helgi Matthíasson – Stuttmyndaforingi – 4. borð
Hreinn Pálsson – Knattspyrnuforingi – 5. borð
Markús Guðmundsson – Alhliðaforingi – 6. borð
Benedikt Guðmundsson – Bátaforingi – 7. borð
Benedikt Þórisson – Frjálsíþróttaforingi – 8. borð
Tómas Andri Gíslason – Alhliðaforingi
Tómas Ingi Halldórsson – Skálaforingi

Þeim til halds og trausts er undirritaður, forstöðumaðurinn Gunnar Hrafn Sveinsson.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Sverrir Hákon Marteinsson. Innan hans sviðs starfa þær Dagný Guðmundsdóttir, Eva Lind Hákonardóttir, Karen Sól Halldórsdóttir og Sólný Sigurðardóttir.

Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Vésteinn, Bjartur O., Bjartur Þ., Grímur, Pétur og Fannar.  Að auki eru tveir danskir sjálfboðaliðar frá KFUM og KFUK í Danmörku þeir Anton og Stefan.

Þá eru Sigurður Jóhannesson, Snorri Rúnarsson og Þórir Sigurðsson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að reisa nýjan Matskála í Vatnaskógi, sem er mjög spennandi að fylgjast með.

Matseðill dagsins

Hádegisverður: Lasagna, hvítlauksbrauð og salat
Nónhressing: Nýbakað brauð og kökur
Kvöldverður: Ýsa í raspi, kartöflur og fl. meðlæti
Kvöldhressing: Ávextir

Nokkur orð um heimþrá

Í rúmlega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Gunnar Hrafn Sveinsson, forstöðumaður.