Veisludagur

Þá er síðasti heili dagurinn hafinn hér hjá okkur í Vatnaskógi og dagskráin er þétt. Brekkuhlaup í frjálsum íþróttum, körfubolti, hjólabílarallý, fjársjóðsleit, vatnafjör, bátar og veiðar, svo eitthvað sé nefnt. Eftir hádegi verður hátíð á knattspyrnuvellinum þar sem Stjörnu- og Draumaliðin etja kappi við ógnarsterkt lið foringja í knattleik. Búast má við svita, tárum, brosum og rennblautum takkaskóm. Heiðurinn er undir hjá foringjaliðinu og montréttur andstæðinganna tryggður ef svo ólíklega vill til að þeir vinni. Sjáum hvernig fer. UPPFÆRT kl. 14:26. 3-5 fyrir drengjum…

Veislumatur um kvöldið, myndataka og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarp Lindarrjóðri og lokapartinum í sögunni um þá félaga Harrý Rögnvalds og Heimi Schnitzel.

Matseðill dagsins

Morgunverður: Morgunkorn og mjólkurvörur
Hádegisverður: Úrvals afgangar frá vikunni (enga matarsóun hér takk)
Síðdegishressing: Kókoskúlur og kanilsnúðar
Kvöldverður: Schnitzel og veglegt meðlæti
Kvöldhressing: Kex og mjólk

Dagskráin á heimkomudegi

Drengirnir hafa verið vaktir kl. 08:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala kl. 09:00, þá munu drengirnir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.

Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.

Þau ykkar sem hyggjast sækja drengina sína í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þeir sem verða sóttir í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959.

Allir óskilamunir sem ekki skila sér til drengjanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.

Þetta er síðasta færslan frá 8. flokki 2024. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 8. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Myndasíðan okkar er hér fyrir neðan.

Myndir úr Vatnaskógi

Með virðingu og þökk,
Gunnar Hrafn, forstöðumaður