Knettir og kátína
Það voru kátir og orkumiklir drengir sem mættu til okkar í Vatnaskóg í gær. Veðrið var nú ekki upp á marga fiska, rigning eftir kaffi sem entist út daginn, en hagstæð vindátt.
Bátsferðir, veiði, frjálsar íþróttir, knattspyrna og ævintýri í skóginum fengu mesta athygli, ásamt girnilegum þjóðhátíðarkökum. Kvöldvakan gekk vel, margir voru að læra nýja söngva, á milli þess sem salurinn hló við skrítlur og látbragð leikfélags Villiandarinnar.
Það voru þreyttir sveinar sem lögðust á koddann sinn í gærkvöldi eftir skemmtilegan þjóðhátíðardag.
Dagurinn í dag
Dagskrá dagsins er stútfull að vanda. Svínadalsdeildin í tuðrusparki heldur áfram þar sem öll 8 borðin keppast um að vinna Deildarbikarinn veglega. Bátarnir verða opnir og hver veit nema það veiðist fiskur! 60m hlaup og langstökk án atrennu munu fara fram í frjálsum íþróttum. Ætli einhver muni slá Skógarmet? Það gæti dregið til tíðinda í þessum efnum síðar í vikunni! Mótin í íþróttahúsinu eru í fullum gangi, tímaskyn, þythokkí og pool á næsta leiti. ,,Mr. Beast,“ tímamótaþraut sem reynir á þol, útsjónarsemi og þrjósku, gönguferð í skóginn og ýmislegt annað. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Búast má við rigningu inn í daginn en um kaffileytið ætti að stytta upp.
Matseðill dagsins
Morgunverður: Morgunkorn
Hádegisverður: Ýsa í raspi, kartöflur og salat
Síðdegishressing: Kaka og brauðmeti
Kvöldverður: Kjúklingatortilla
Kvöldhressing: Kex og mjólk
Símatími forstöðumanns er opinn milli kl. 11-12 í dag.
Minnum á myndasíðuna okkar sem uppfærist yfir daginn:
Myndir úr Vatnaskógi
Með kveðju,
Gunnar Hrafn, forstöðumaður.