Náttfatapartý, Mr. Beast og Orrusta
Gærdagurinn var stútfullur af skemmtilegheitum og loksins fór að birta ögn til þegar golan blés þokunni hægt og rólega í burtu. Fastir dagskrárliðir voru á sínum stað en jafnframt settu hinu fjölmörgu foringjar og aðstoðarforingjar saman æðislega og einstaka skemmtidagskrá þar sem þreyta mátti Víðavangshlaupið (þar sem hlaupið er í kringum Eyrarvatn), boðið var upp á Orrustu í íþróttahúsinu (en það er skotbolti spilaður á og í kringum uppblásna hoppukastala), “Vatnafjör” þar sem fjölmargir hoppuðu út í Eyrarvatn og fengu jafnvel far með foringjum á mótórbáti. Nýlegur liður var keyrður í gang, svokallaður “Mr Beast áskorun” þar sem reynir á þolgæði og útsjónarsemi og þá var jafnframt boðið upp á ævintýraferð í skóginum. Hæfileikar barnanna í flokknum eru ótrúlegir og fengum við smjörþefinn af þeim á hæfileikasýningu sem skellt var í á kvöldvökunni. Eftir að kvöldkaffinu var lokið var svo boðið upp á náttfatapartý. Þar var heldur betur stuð. Tónlistin réð ríkjum og margir tóku jafnvel dansspor, partýin lauk svo með leikriti frá foringjunum og stuttri sögu.
Veisludagur
En nú er síðasti heili dagurinn hafinn hjá okkur í Vatnaskógi. Í morgun vöknuðu allir hressir og spenntir og dagurinn virðist ætla að verða enn bjartari en í gær og þokann hratt á útleið. Þessi síðasti heili dagur í flokknum er svokallaður veisludagur, sem að flestra mati er hápunktur flokksins. Dagskráin er að vanda þétt, en boðið verður upp á Brekkuhlaup, langstökk og kringlukast í frjálsum íþróttum, bátar, smíðar og vatnafjör verður áfram í boði, útileikir, brennó, heitir pottar verða opnir, og svo hefur verið ákveðið að skella í brandarkeppni og bjóða upp á varúlf (sem jafnframt er kölluð mafia).
Seinni partinn verður hátíð á knattspyrnuvellinum þar sem Stjörnu- og Draumaliðin etja kappi við ógnarsterkt lið foringja í knattleik. Búast má við svita, tárum, brosum og takkaskóm. Heiðurinn er undir hjá foringjaliðinu og montréttur andstæðinganna tryggður ef svo ólíklega vill til að foringjar tapi leiknum.
Veislumatur verður svo í kvöld, myndataka, og kvöldvaka sem er af lengri og dýrari gerðinni, með bikarafhendingu, Biblíuspurningakeppni, leikritum, Sjónvarpi Lindarrjóðri og ýmiskonar glensi og gríni.
Matseðill dagsins
Morgunverður: Morgunkorn og súrmjólk.
Hádegisverður: Pylsur
Síðdegishressing: Kaka og kleinuhringur
Kvöldverður: Grísasnitsel
Kvöldhressing: Ís
Dagskráin á heimkomudegi
Börnin hafa verið vakin kl. 08:30 á morgnana en á brottfarardag er venja að gefa þeim ögn lengri svefn. Haninn mun því gala kl. 09:00, þá munu allir fara í morgunmat, pakka í töskur, finna dótið sitt og halda svo út í frjálsan tíma og skipulagða hópleiki. Því næst verður haldið í hádegismat, í flatbökuveislu að hætti Vatnaskógar og síðan verða óskilamunir kynntir sem fundist hafa á víð og dreif um svæðið.
Rútan leggur af stað frá Vatnaskógi kl. 14:00 og áætluð koma á Holtaveg 28 er því kl. 15:00.
Þau ykkar sem hyggjast sækja bornin sín í Vatnaskóg eru beðin um að koma eigi síðar en kl. 13:30. Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar börn sjálf ef þau eru skráð í rútuna heim, svo töskurnar þeirra fari ekki upp í rúturnar. Þau sem verða sótt í Vatnaskóg munu koma farangri sínum fyrir framan matskálann. Endilega látið vita sem fyrst en símatíminn er eins og fyrr segir milli kl. 11:00-12:00 og síminn er 433 8959. Tilkynna má þó um þetta síðar í dag.
Allir óskilamunir sem ekki skila sér til barnanna í Vatnaskógi munu fara á Holtaveg 28 í Reykjavík, félagsheimili KFUM og KFUK.
Þetta er síðasta færslan frá 9. flokki 2025. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við
9. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.
Minnum á myndasíðuna okkar sem uppfærist yfir daginn:
Myndir úr Vatnaskógi
Með kveðju,
Davíð Örn Sveinbjörnsson, forstöðumaður