Nú er sjöundi flokkur í Vatnaskógi hafinn. Á svæðinu eru tæplega 100 drengir og rúmlega tuttugu starfsmenn á öllum aldri.

Foringjar í 7. flokki sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Páll Ágúst Þórarinsson, Birkir Bjarnason, Gísli Felix, Dagur Adam Ólafsson, Benjamín Gísli Einarsson, Gunnar Hrafn Sveinsson, Matthías Guðmundsson og Hans Patrekur Hansson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Valborgu Rut Geirsdóttur en henni til aðstoðar eru Kristín Sigrún Magnúsdóttir, Ingibjörg Lóreley Zimsen Friðriksdóttir, Hugrún Lena Hansdóttir og Una Kamilla Steinsen. Þess utan verða tveir matvinnungar á svæðinu, ungir framtíðarleiðtogar sem grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar eða skipulag leikja undir umsjón foringja, þau Anna Laufey Halldórsdóttir, Kristinn Sigurðsson og Kristján Gabríel Þórhallsson. Umsjón með verklegum framkvæmdum hafa Sigurður Jóhannesson og Þórir Sigurðsson. Þá verður Gríma Katrín Ólafsdóttir vinnumaður í flokknum og kemur að ýmsu daglegu viðhaldi.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 26 ár sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 36 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.

Myndir úr 7. flokki