Í gær komu um 100 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á föstudaginn 18.júní. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 8. Við hvert borð er borðforingi sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.

Það var ekkert um heimþrá í gærkvöldi en það má segja að það sé fordæmalaust, við lifum jú á fordæmalausum tímum.

Hér er gott veður, 12°C og skýjað en mikill vindur. Því miður höfum við ekki náð að opna bátana vegna sterkrar norðaustanáttar en vonum að það lægi á morgun. Allt gengur mjög vel. Þetta eru hressir og skemmtilegir drengir sem eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, skemmitlegir innleikir og að ógleymdir smíðastofunni. Rétt eins og íslenska úrvalsdeildin er komin af stað þá er svínadalsdeildin komin á fulla ferð hér í Vatnaskógi en í henni keppa borðin sín á milli. Mjög spennandi. Í kvöld verður svo kvöldvaka  að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Maturinn, Dagur 1

Hádegismatur – Stektur fiskur, kartöflur, sósa og salat

Kaffitími – Súkkulaðikaka, bananabrauð og ávextir

Kvöldmatur – Nýbakað brauð og sveppasúpa

Kvöldhressing – Pólókex, mjólkurkex, mjólk og vatn

Maturinn, Dagur 2

Morgunmatur – Kakó, nýbakað brauð og álegg

Hádegismatur – Kjúklingaréttur, grænmeti og kúskús

Kaffitími – Kryddbrauð, ávextir og HLUNKAKÖKUR

Kvöldmatur – Ítalskur pastaréttur

Kvöldhressing – Ávextir

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Benedikt Guðmundsson – Alhliðaforingi

Eiríkur Skúli Gústafsson – Bátaforingi

Gunnar Hrafn Sveinsson – Flotamálaráðherra

Fannar Logi Hannesson – Útileikjaforingi

Ísak Jón Einarsson – Frjálsíþróttaforingi

Ástráður Sigurðsson – Knattspyrnuforingi

Ríkharður Esterason – Innileikjaforingi

Pétur Bjarni – Birkiskálaforingi

Baldur Ólafsson – Alhliðaforingi

Þeim til halds og trausts eru þeir Ólafur Gunnar Long, Magnús Viðar Skúlason og forstöðumenn flokksins Hreinn Pálsson og Pétur Ragnarsson.

Eldhúsi og þrifum í Vatnaskógi stýrir ráðskonan Tinna Dögg Birgisdóttir. Henni til aðstoðar eru Dagný Guðmundsdóttir, Davíð Guðmundsson, Sólveig Erla Erlingsdóttir og Bergdís Brynjarsdóddir.

Þess utan eru ungir aðstoðarforingi á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Guðjón, Tristan, Markús og Ísar.

Þá er Þórir Sigurðsson í flokknum en hann kemur að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11 og 12 alla daga. Inn á þessa síðu munu svo koma myndir úr flokknum.

Meira síðar!

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

Vatnaskógur 2021