Veisludagur 29.júní

Það var mikil veisla á veisludegi okkar hér í Vatnaskógi í gær. Við vöktum drengina klukkan 9:15, aðeins seinna en venjulega. Veisludagar eru oft aðeins lengri en hefðbundnir dagar í Vatnaskógi þannig að það er fínt að sofa örlítið lengur.

Eftir hádegismat þá skoruðum við foringjarnir á drengina í fótbolta. Við skiptum þeim upp í tvö lið, stjörnulið og draumalið, og spiluðu liðin sitthvorn hálfleikinn. Foringjarnir unnu leikinn en barátta drengjanna var aðdáunarverð. Margir flottir og efnilegir knattspyrnumenn þarna á ferðinni.

Kvöldvakan var glæsileg. Það var mikið  sungið, við heyrðum lokahlutann í frammhaldssögunni, sáum nokkur leikrit og svo auðvitað Sjónvarp Lindarrjóður. Frábær kvöldvaka í alla staði.

Matseðill

Morgunmatur: Kakó og brauð

Hádegismatur: Lambagúllas og salat

Kaffitími: Súkkulaðikaka, bananabrauð og ávextir

Kvöldmatur: BURGERS, bakaðar kartöflur og gos í bauk

Kvöldkaffi: Ávextir og kex

Brottfarardagur 30.júní

Þá er að koma að lokum hér hjá okkur í 4.flokki. Þetta er búið að vera frábær flokkur, skemmtilegir og hressir drengir.

Við munum pakka fyrir hádegi og setja töskurnar okkar í rútuna um 12.

Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim. Það er svo að töskurnar þeirra fari ekki upp í rútu. Látið vita fyrir klukkan 12:00.

Þeir sem eru ekki merktir í rútu og verða sóttir munu setja töskurnar sínar við matskálann.

Símatíminn í dag er frá 11 til 12.

Hádegismatur er klukkan 12:30 og brottför frá Vatnaskógi klukkan 14:00. Áætluð koma í bæinn er klukkan 15:00

Nýjar myndir frá veislukvöldvökunni eru komnar inn.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk

Hádegismatur: Vatnaskógar pizzur

Þetta er síðasta færslan frá 4. flokki 2021. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 4. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Takk.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

4.flokkur Vatnaskógur