Annað árið í röð hafa Skógarmenn KFUM, sem reka sumarbúðir í Vatnaskógi, tekið þá ákvörðun að aflýsa Sæludögum í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina. Sæludagar eru fjölskylduhátíð í anda sumarbúða KFUM og KFUK sem haldin hefur verið í Vatnaskógi samfellt frá 1992.
Í ljósi nýjustu samkomutakmarka stjórnvalda er það mat stjórnar Skógarmanna KFUM að ekki sé lengur forsvaranlegt að halda fyrirhugaða fjölskylduhátíð. Uppbygging og starfsemi Vatnaskógar byggist að miklu leyti á framlögum sjálfboðaliða í verkefnum líkt og Sæludögum.
Við erum þakklát þeim fjölmörgu aðilum sem hafa undanfarna daga staðið í ströngu við undirbúning hátíðarinnar sem og þeim sem höfðu tryggt sér þá aðgöngumiða á hátíðina. Skógarmenn munu að sjálfsögðu að fullu endurgreiða aðgöngu- og gistikostnað sem þátttakendur hafa greitt en eru einnig þakklát þeim sem myndu vilja styðja við starfsemina.
Upplýsingar um endurgreiðslu á aðgöngumiðum og gistingu innanhús verða kynntar hér á vefnum í næstu viku.