Þá er að koma að lokum hér hjá okkur í 4.flokki, ævintýraflokki 1. Þetta er búið að vera frábær flokkur, skemmtilegir og hressir drengir, mikil dagskrá og allir þreyttir.
Við munum pakka fyrir hádegi og setja töskurnar okkar í rútuna um 12.
Vinsamlegast látið vita ef þið ætlið að sækja ykkar drengi sjálf ef þeir eru skráðir í rútuna heim. Það er svo að töskurnar þeirra fari ekki upp í rútu. Látið vita fyrir klukkan 12:00 í síma 433 8959.
Þeir sem eru ekki merktir í rútu og verða sóttir munu setja töskurnar sínar við matskálann.
Símatíminn í dag er frá 11 til 12.
Hádegismatur er klukkan 12:15 og brottför frá Vatnaskógi klukkan 14:00. Áætluð koma í bæinn, Holtaveg 28, er klukkan 15:00
Myndir frá veislukvöldvökunni eru komnar inn.
Matseðill
Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk
Hádegismatur: Vatnaskógar pizzur
Þetta er síðasta færslan frá 4. flokki 2022. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 4. flokk getur þú sent tölvupóst á arsaell@kfum.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.
Hreinn Pálsson – Forstöðumaður