Í gær mættu 106 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á laugardaginn 15.júlí. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 8. Við hvert borð er borðforingi sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.
Í dag er þokkalegasta veður. Sólin skín og lofthitinn fer í 13°C en norðaustan áttinn blæs hvasst í dag. Þetta eru hressir og skemmtilegir drengir sem eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, smíðastofan, fótbolti, skemmitlegir innleikir sem og útileikir. Bátarnir opnuðu stutta stund í gær en lokuðu svo vegna roks. Við vonumst eftir því að það fari að lægja svo drengirnir geti farið út á bát. Í gærkveldi var hin vinsæla kvöldvaka að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, sögu, hugleiðingu og söng. Þær verða svo öll kvöld, venju samkvæmt.
Í dag verður stærsti dagskrárliðurinn hinn frægi klemmuleikur Vatnaskógar. Þar takast þeir á í tveimur liðum, Oddverjar og Haukdælir við gamla eyðibýlið Oddakot sem liggur við austurós Eyrarvatns. Þetta er skemmtilegur leikur sem líkist liðaskiptum eltingaleik en í stað þess að klukka hvern annan grípa þeir þvottaklemmu af hver öðrum.
Nokkur orð um heimþrá
Í rúmlega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.
Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.
Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.
Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.
Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.
Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.
Starfsfólk
Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:
Þráinn, 1. borð – Yfirforingi
Kristján, 2. borð – Alhliðaforingi
Tómas Ingi, 3. borð – Knattspyrnuforingi
Agnar, 3. borð – Innileikjaforingi
Darri, 4. borð – Alhliðaforingi
Nói Pétur, 5. borð – Útileikjaforingi
Guðmundur, 6. borð – Bátaforingi
Jakob, 7. borð – Frjálsíþróttaforingi
Tristan Enok, 8. borð – Smíðaforingi
Borðlausir:
Gunnar Sandholt – Alhliðaforingi
Þeim til halds og trausts er forstöðumaðurinn Matthías Guðmundsson.
Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Sverrir Hákon. Í eldhúsinu starfa einnig Lára Rut Clausen, Pétur Bjarni Sigurðarson, Markús Guðmundsson og Svanhildur Reynisdóttir
Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þeir Einar og Fannar.
Þá eru Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að lokum er einn starfandi vinnumaður í flokknum, hann Ísak Jón Einarsson, sem kemur til með að sinna hinu og þessu, slá grasið og þar fram eftir götunum.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.
Nýjar myndir koma inn flickr síðu Vatnaskógar hér: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72177720309709022
Matthías Guðmundsson, forstöðumaður