Von er á rúmlega 100 drengjum í sumarbúðirnar í Vatnaskógi þriðjudaginn 17. júní, á sjálfan þjóðhátíðardaginn og framundan er fimm daga skemmtidagskrá með öllu tilheyrandi.
Dagskrá fyrsta dags
Þegar drengirnir koma á staðinn er þeim vísað inn í matsal þar sem þeir velja sér tiltekið borð frá 1-8. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgir borðforingi sem sér um eftirlit yfir sínu borði og er til staðar fyrir drengina.
Eftir hádegi og út daginn verður pökkuð dagskrá fyrir drengina. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, báta og smíðaverkstæðið, frjálsíþróttakeppnin, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira, að ógleymdri Svínadalsdeildinni, knattspyrnumótinu fræga.
Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt framhaldssögunni um þá Harry Rögnvalds og Heimi Schnitzel.
Starfsfólk
Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:
Andri Karl Bragason og Markús Guðmundsson – 1. borð
Steinn Trausti Traustason og Hallur Hrafn Garðarsson Proppé – 2. borð
Tristan Enok Kvaran Guðjónsson – 3. borð
Tómas Ingi Halldórsson – 4. borð
Guðjón Daníel Bjarnason – 5. borð
Guðmundur Tómas Magnússon – 6. borð
Jakob Freyr Einarsson – 7. borð
Hreinn Pálsson – 8. borð
Ársæll Aðalbergsson og Baldur Ólafsson
Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Lára Ruth Clausen. Innan hennar sviðs starfa þau Bríet Saga Kjartansdóttir, Erlendur Snær Erlendsson, Eva Lind Hákonardóttir og Helena Ingrid Gunnarsdóttir Langdal.
Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þau
Alexandra, Bjarki, Bjartur, Ísabella, Kári og Sigurvin.
Þá eru Sigurður Jóhannesson, Snorri Rúnarsson og Þórir Sigurðsson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að reisa nýjan Matskála í Vatnaskógi, sem er mjög spennandi að fylgjast með.
Matseðill dagsins
Hádegisverður: Lasagna, salat og hvítlauksbrauð
Nónhressing: Þjóðhátíðarkaka
Kvöldverður: Grjónagrautur
Kvöldhressing: Ávextir
Nokkur orð um heimþrá
Í rúmlega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.
Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.
Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.
Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.
Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.
Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Gunnar Hrafn Sveinsson, forstöðumaður.