Á bátunum piltarnir bruna

Við fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þann dag sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa hér í dvalarflokki. Af því tilefni fræddum við strákana á morgunstund um 102 ára sögu Vatnaskógar og uppbyggingu staðarins sem vakti mikinn áhuga þeirra.

Dagskrá dagsins

Fjölmargar keppnir verða í dag hjá okkur. Pool, stangartennis, körfubolti, spjótkast, fótboltaspil, 400m hlaup og önnur ,,Mr. Beast“ þraut (síðastur til að fara úr hringnum),svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður íþróttahúsið opið með öllum sínum leiktækjum. Bátarnir, veiðar, knattspyrna, hópleikur, vatnafjör, þar sem strákarnir fá að busla í Eyrarvatni og ævintýri í skóginum. Það er því nóg fyrir stafni, tíminn líður hratt og dvölin nú hálfnuð.

Matseðill dagsins

Hádegisverður: Pastaréttur
Síðdegishressing: Kaka og brauðmeti
Kvöldverður: Kjötbollur m. kartöflumús og sósu
Kvöldhressing: Ávextir

Hér má sjá myndir:

Myndir úr Vatnaskógi

Með Skógarmannakveðju,
Gunnar Hrafn, forstöðumaður