Skógarmenn
Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.
Til hamingju Skógarmenn!
Dagskráin í fullum gangi – VÆB heimsókn og fjör á vatninu
Það er sannkallað líf og fjör í Vatnaskógi þessa dagana, bátarnir eru ávalt vinsælir, smíðaverkstæðið iðar af sköpunargleði og íþróttahúsið nýtur mikillar aðsóknar. Gaman er að sjá hversu vel drengir nýta sér fjölbreyttu dagskrána sem boðið er upp á.
Eftir hádegismat býðst þátttakendum að taka þátt í Vatnafjöri þar sem tuðran er fest við mótorbát og brunað um Eyrarvatn, vinsæll og spennandi dagskráliður sem margir bíða spenntir eftir. Að loknum kaffitíma tekur svo Lazertag við í skóginum, allt þetta til viðbótar við hefðbundna dagskrá dagsins.
Í gær fengum við líka afar skemmtilega heimsókn. Hálfdán, annar helmingur hinnar vinsælu VÆB-bræðra, kíkti í Skóginn og stýrði nokkrum vel völdum útileikjum. Mætingin var frábær og greinilegt að margir höfðu beðið spenntir eftir þessari heimsókn.
Matseðill
Þriðjudagurinn 24. júní
Morgunmatur – Heitt kakó, brauð með áleggi og morgunkorn
Hádegismatur – Kjúklingatortilla
Kaffitími – Kanilsnúðar, Jógúrtkaka og karamellulengjur
Kvöldmatur – Kjötbollur, kartöflustappa, brún sósa og grænmeti
Kvöldkaffi – Ávextir og kex
Mánudagurinn 23. júní
Morgunmatur – Morgunkorn og súrmjólk
Hádegismatur – Ávaxtagrautur og brauð með áleggi
Kaffitími – Karamellukaka, kanillengjur og kjallarabolla
Kvöldmatur – Grillaðar pylsur
Kvöldkaffi – Mjólkurkex og pólókex
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður.