Í dag, sunnudaginn 29. Júní, lögðu 35 líflegir drengir af stað í Vatnaskóg, og framundan er
fimm daga skemmtidagskrá með öllu tilheyrandi.
Dagskrá fyrsta dags
Þegar rútan lagði í hlað, var drengjunum vísað inn í matsal þar sem þeir völdu sér tiltekið
borð frá 1-4. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn.
Með hverju borði fylgja borðforingjar sem sjá um eftirlit yfir sínu borði og eru til staðar fyrir
drengina.
Eftir hádegi og út daginn var pökkuð dagskrá fyrir drengina. Má þar nefna hópleiki og ýmsa
útileiki, báta og smíðaverkstæðið, listasmiðja, frjálsíþróttakeppnin hófst með langsstökki í
dag, allt það sem íþróttahúsið hefur upp á að bjóða og margt fleira.
Síðar um kvöldið verður kvöldvaka með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt
framhaldssögunni að hætti Nóa Péturs einn af okkar reyndasta foringja í flokknum.
Starfsfólk
Forstöðumenn þessa flokks eru feðgarnir Sigurður Pétursson; Ástráður Sigurðsson og
undirritaður Pétur Sigurðsson.
Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:
Benedikt Benedikt Þórisson – 1. borð
Nói Pétur Ásdísarson Guðnason – 2. borð
Guðjón Daníel Bjarnason og Steinn Trausti Traustason – 3. borð
Hallur Proppé og Bjartur Dalbú Ingibjartsson – 4. borð
Það er nóg um að vera í viðhaldi á staðnum þessa dagana og hann Jakob Freyr Einarsson
er umsjónarmaður þeirra verka þessa vikuna.
Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Valborg Rut Geirsdóttir. Innan hennar sviðs
starfa þau Kristbjörg Katla Hinriksdóttir, Messíana Baldvinsdóttir, Bríet Saga Kjartansdóttir,
Helena Ingrid Gunnarsdóttir Langdal.
Þess utan eru ungir aðstoðarforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK.
Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask,
smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja.
Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þau
Högni, Sigursveinn, Ari og Karen.
Þá eru Sigurður Jóhannesson, Snorri Rúnarsson og Þórir Sigurðsson í flokknum en þeir
koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna
Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess
viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að reisa nýjan Matskála í
Vatnaskógi, sem er mjög spennandi að fylgjast með.
Matseðill dagsins
Hádegisverður: Fiskibollur (og kjötbollur) með kartöflum og karrý sósu.
Kaffi: Brownie kaka með glassúr og kryddbrauð með smjör og osti.
Kvöldverður: Grjónagrautur
Kvöldhressing: Ávextir
Nokkur orð um heimþrá
Í fjölmennum hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn
eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða
hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við
heimþrá. Því er hér smá innlegg.
Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja
hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi
og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í
sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir,
lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum
fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur
einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.
Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg
viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar
sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa
ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.
Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og
höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta
dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi
drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist
til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli
allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.
Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að
brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig
viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni
að tækifærunum.
Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún
sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og
andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar
drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og
þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.
Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla
daga. Símanúmerið er: 433 8959.
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Pétur Sigurðsson, f.h. forstöðumanna.