Skógarmenn
Við í Vatnaskógi fögnum alltaf 3. degi hvers flokks sérstaklega og lítum á þau sem ákveðin tímamót, því að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti í Vatnaskóg teljast nú til Skógarmanna, en til þess þarf maður að dvelja tvo sólarhringa í dvalarflokki í Vatnaskógi.
Til hamingju Skógarmenn!
Dagskráin í fullum gangi
Það er sannkallað líf og fjör í Vatnaskógi þessa dagana, bátarnir eru ávalt vinsælir, smíðaverkstæðið iðar af sköpunargleði og íþróttahúsið nýtur mikillar aðsóknar. Gaman er að sjá hversu vel drengir nýta sér fjölbreyttu dagskrána sem boðið er upp á.
Eftir hádegismat býðst þátttakendum að taka þátt í Vatnafjöri þar sem tuðran er fest við mótorbát og brunað um Eyrarvatn, vinsæll og spennandi dagskráliður sem margir bíða spenntir eftir. Að loknum kaffitíma tekur svo Lazertag við í skóginum, allt þetta til viðbótar við hefðbundna dagskrá dagsins.
Í gær fengum við líka afar skemmtilega heimsókn. Sirkus Flikk-Flakk kom í heimsókn og setti upp skemmtilega sýningu og bauð upp á popp og candyfloss á meðan. Eftir sýninguna bauðst drengjunum að prófa ýmislegt sem gert var í sýningunni undir góðri leiðsögn Flikk-Flakk.
Matseðill
Fimmtudagurinn 10. júlí
Morgunmatur – Morgunkorn, súrmjólk og hafragrautur
Hádegismatur – Ítalskar kjötbollur, hvítlauksbrauð og sósa
Kaffitími – Skúffukaka og jólakaka
Kvöldmatur – Pastaréttur
Kvöldkaffi – Ávextir og kex
Miðvikudagurinn 9. júlí
Morgunmatur – Morgunkorn og súrmjólk
Hádegismatur – Svikinn héri með sósu, stöppu og salati
Kaffitími – Kryddbrauð og kanilsnúður
Kvöldmatur – Grillaðar pylsur
Kvöldkaffi – Ávextir og snúðar
Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi
Meira síðar.
Virðingarfyllst,
Hreinn Pálsson, forstöðumaður.