Í gær, laugardaginn 19. júlí,  lögðu 70 líflegir krakkar, bæði stelpur og strákar, af stað upp í Vatnaskóg. Dagskráin hófst strax við komuna gekk einstaklega vel, með stilltu veðri sem bauð upp á skemmtilega inni- og útidagskrá. Fyrsta nóttin gekk eins og í sögu og krakkarnir vel hvíldir og reiðubúnir í þétta skemmtidagskrá dagsins í dag.

Dagskrá fyrsta dags

Þegar rútan lagði í hlaðið, var krökkunum vísað inn í matsal þar sem þeir völdu sér tiltekið borð frá 1-6. Mun það verða þeirra bækistöð, ef svo mætti að orði komast, yfir allan flokkinn. Með hverju borði fylgja borðforingjar sem sjá um eftirlit yfir sínu borði og eru til staðar fyrir krakkana. Þá erum við svo lánssöm að hafa með okkur um 9 aðstoðarforingja sem eru borðforingjunum til halds og traust. Flokkurinn er því vel mannaður.

Eftir hádegi og út daginn var pökkuð dagskrá fyrir börnin. Má þar nefna hópleiki og ýmsa útileiki, báta og smíðaverkstæðið, Svínadalsdeildin sívinsæla í fótbolta hófst, svo og frjálsíþróttakeppnin sem fór af stað með góðum 60m spretti. Að sjálfsögðu var svo íþróttahúsið opið með öllu því sem það hefur upp á að bjóða, og margt fleira.

Síðar um kvöldið var fyrsta kvöldvakan haldin með tilheyrandi söng, leikriti og hugleiðingu, ásamt örsögu með leikrænum tilburðum. Að henni lokinni var svo boðið upp á kvöldkaffi fyrir svefninn, þ.á m. hið klassíska póló kex.

Starfsfólk

Forstöðumaður þessa flokks er Davíð Örn Sveinbjörnsson og með honum til halds og trausts er yfirforinginn Sigríður Sól Ársælsdóttir.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun í flokknum eru:

Ásta Isabella Kent og Alice Viktoria Kent– 1. borð
Karen Sól Halldórsdóttir – 2. borð
Tómas Ingi Halldórsson – 3. borð
Benedikt Þórisson – 4. borð
Svanhildur Reynisson – 5. borð
Guðjón Daníel Bjarnason – 6. borð

Þá er okkar reynslumikli foringi Jakob Freyr Einarsson framangreindum til stuðnings og heldur jafnframt uppi stuðinu við hljómborðið á samverustundum.

Eldhúsi og þrifum á staðnum stýrir matráðurinn Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson. Innan hans sviðs starfa þau Helena Ingrid Gunnarsdóttir Langdal, Kristbjörg Katla Hinriksdóttir, Fannar Smári Jóhannesson, Arna Sól Zoëga og Hallur Proppé.

Eins og áður segir eru foringjarnir með aðstoðarforingja, þetta eru framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa vikuna eru þau: Sæmundur, Dagmar Edda, Rósa Kristín, Kamilla, Signý, Vésteinn, Magnþóra, Sunna og Salómon.

Það er nóg um að vera í viðhaldi á staðnum þessa dagana sem Pétur Bjarni Sigurðsson ásamt þeim Sigurði Jóhannessyni, Snorra Rúnarssyni og Þórir Sigurðssyni sem koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði. Að ógleymdum okkar eina sanna Alberti Ebenezer Bergsteinssyni, sem sér um að slá grasið á rauðu þrumunni, þegar til þess viðrar. Þá eru nokkrir smiðir á svæðinu en þessa dagana er verið að reisa nýjan Matskála í Vatnaskógi, sem er mjög spennandi að fylgjast með.

Matseðill gærdagsins

Hádegisverður: Kjúklingu með kartöflum, salati og sósu.
Kaffi: Pítsasnúðar og súkkulaðikaka.
Kvöldverður: Ávaxtasúrmjólk og brauð.
Kvöldhressing: Pólókex og matarkex

Matseðill dagsins í dag

Morgunverður: Morgunkorn, hafragrautur og súrmjólk
Hádegisverður: Svikinn héri og meðlæti
Kaffi: Lummur og muffins
Kvöldverður: Pasta
Kvöldhressing: Ávextir

Nokkur orð um heimþrá

Í fjölmennum hópi er ekki ólíklegt að einhver börn finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð barnanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á börnunum, geta þau komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir mörg börn í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þau hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri barnanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi einstaklingur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla barnanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir þau og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar barnanna séu þess eðlis að þau eru einfaldlega ekki tilbúin til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959.

Myndir úr flokknum munu birtast inn á þessa síðu: Myndir úr Vatnaskógi

Meira síðar.

Virðingarfyllst,
Davíð Örn Sveinbjörnsson