Upplýsingar fyrir gesti, foreldra og forráðamenn

Velkomið í sumarbúðir KFUM og KFUK í Vatnaskógi. Það er markmið okkar að dvölin verði ánægjuleg.
.

Hér eru nokkrar hagnýtar upplýsingar

1. Farangur
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:
Sæng eða svefnpoki*, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, lítill bakpoki og vatnsbrúsi f. lengri gönguferðir, inniíþróttaskór, nærföt, nægir sokkar, peysur, trefill, húfa, vettlingar, buxur, betri fatnaður, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti, tannkrem og jafnvel flugnanet. Fínni föt fyrir veislukvöldið eins og t.d. skyrta eða fín peysa.

Einnig er hægt að kaupa flugnanet (kosta kr. 1,000.-). Að öllu jöfnu er ekki er þvegið af börnunum í sumarbúðum. Sælgæti er ekki leyfilegt í Vatnaskógi.

*Fyrir ævintýra- og unglingaflokka mælum við með svefnpoka í stað sængur ef vera skyldi að barnið vilji taka þátt í útilegu undir berum himni.

2. Fatamerking
Áríðandi er að merkja greinilega allan farangur og töskur með nafni og símanúmeri þátttakenda. Föt og aðrar eigur þátttakenda eru á ábyrgð þeirra sjálfra og verða ekki bættar ef eitthvað glatast eða skemmist. Gott er að gera nákvæman lista yfir farangur barnanna til að auðvelda þeim að pakka niður til heimferðar.

3. Óskilamunir
Hægt er að vitja óskilamuna í Þjónustumiðstöðina við Holtaveg 28 í Reykjavík. Eftir 1. október áskilja sumarbúðirnar sér rétt til að ráðstafa ósóttum óskilamunum.

4. Lyf/læknisvottorð
Ekki þarf að koma með læknisvottorð, nema eins og segir í reglugerð: „Þeim börnum sem eiga við einhvers konar veikindi að stríða skal fylgja læknisvottorð þar sem fram komi upplýsingar um veikindin og skýr fyrirmæli læknis um meðferð, lyfjagjöf o.s.frv.“ Ef barnið tekur lyf, látið skriflegar leiðbeiningar fylgja með lyfinu og afhendið starfsmanni sumarbúðanna við brottför. Það sama á við ef eitthvað annað sérstakt gæti skipt máli varðandi heilsu barnsins og líðan.

5. Brottför – heimkoma
Farið er frá húsi KFUM og KFUK, Holtavegi 28, kl. 10:00 og heimkoma á sama stað um kl. 15:00. Þeir sem kjósa að koma með og/eða sækja börn sín í sumarbúðirnar, í stað þess að nýta sér rútuferð, komi ekki með börnin fyrr en kl. 11:00 þann dag sem dvöl hefst og sæki þau ekki seinna en kl. 14:00 á brottfarardag.

6. Athugið
Vegna hættu á skemmdum eða slysum er þátttakendum óheimilt að hafa með sér hnífa eða önnur hættuleg tæki í sumarbúðirnar. Þátttakendur eru skaðabótaskyldir vegna skemmda sem þeir kunna að valda. Síma og önnur verðmæt tæki er einnig óheimilt að taka með.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu allan tímann í sumarbúðunum. Ef til þess kemur að þátttakendur þurfa að skreppa tímabundið úr flokknum (fjölskylduaðstæður, mikilvægir knattspyrnuleikir o.s.frv.) þá skal tilkynna það fyrirfram og vera með fullu samþykki foreldra/forráðamanna.

7. Myndbirting
KFUM og KFUK á Íslandi áskilur sér rétt til notkunar á myndum af þátttakendum í starfi og viðburðum á vegum félagsins. Félagið mun hafa að leiðarljósi að gæta varúðar og nærgætni við myndbirtingar í samræmi við leiðbeinandi álit persónuverndar.

8. Fyrirspurnir
Ef foreldrar vilja spyrjast fyrir um börn sín á meðan á dvölinni stendur er hægt að hringja í síma 433 8959 kl. 11:00-12:00 og ræða við starfsfólk. Á heimasíðunni www.vatnaskogur.is verður reynt að birta daglegar fréttir.

9. Veiðileyfi:
Margir hafa gaman af að veiða. Eftir þeim bíður silungurinn í Eyrarvatni. Veiðileyfi eru innifalin í dvalargjaldi. Athugið að hægt er að fá veiðarfæri lánuð.