Óskilamunir sumarstarfsins 2014

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0022. september 2014|

Við viljum minna fólk á að vitja óskilamuna frá sumarstarfi sumarbúða og leikjanámskeiða KFUM og KFUK. Þriðjudaginn 30.september verður óvitjuðum óskilamunum ráðstafað til hjálparstarfs. Við viljum biðja fólk um að athuga hvort það hafi nokkuð villst fatnaður annarra barna og [...]

Heilsudagar karla í Vatnaskógi 12.-14. september 2014

Höfundur: |2014-12-10T05:14:31+00:003. september 2014|

Helgina 12. -14. september verða Heilsudagar karla haldnir í Vatnaskógi. Heilsudagar eru ætlaðir körlum á aldrinum 17-99 ára. Tilgangur þeirra er að styrkja líkama, sál og anda. Líkaminn er styrktur með þátttöku í íþróttum, gönguferðum og vinnu í þágu Vatnaskógar. [...]

Feðgaflokkur í Vatnaskógi

Höfundur: |2014-12-10T05:17:30+00:0020. ágúst 2014|

Í lok sumarstarfs bjóða Skógarmenn upp á Feðgaflokk í Vatnaskógi. Flokkurinn er fyrir feður og syni 7 ára og eldri. Spennandi dagskrá verður í boði, íþróttir, bátar, gönguferðir og ýmsir leikir. Kvöldvökur að hætti Skógarmanna verða á sínum stað. Strákatími [...]

Vatnaskógur: Lokadagur

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0014. ágúst 2014|

Þegar við vöknuðum í morgun var búið að slétta vatnið, þannig að hægt var að spegla sig í því. Þetta er kærkomin breyting eftir þriggja daga norðaustan rok, þó að vatnið gárist örlítið núna eftir morgunmatinn.  […]

Vatnaskógur: Skógarmet slegið

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0013. ágúst 2014|

Það gerist ekki á hverju ári að skógarmet sé slegið í Vatnaskógi. En Skógarmet eru skilgreind sem besti árangur sem einstaklingur hefur náð í ákveðinni íþróttagrein í sínum aldursflokki í frjálsíþróttamótinu í Vatnaskógi. Í Vatnaskógi eru tvær greinar í frjálsíþróttamótinu [...]

Vatnaskógur: Töfrabrögð

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0013. ágúst 2014|

Það var frábært að fá drengina inn í matskálann eftir fyrstu tvær klukkustundirnar á töframannanámskeiði Jóns Víðis í gær. Sumir þeirra komu hlaupandi til að sýna mér töfrabrögð þar sem þeir ýttu 10 króna peningi inn í höfuðið á bakvið [...]

Vatnaskógur: Fjölbreytt dagskrá

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0012. ágúst 2014|

Þrátt fyrir að lokavika sumarsins sé töframannanámskeið, aðeins fjórir dagar, drengirnir séu óvenjufáir og rokið óvenjumikið, þýðir það alls ekki að við gefum afslátt á hefðbundinni dagskrá. Dagurinn í gær byrjaði með sameiginlegri dagskrá í íþróttahúsinu, þar sem farið var í [...]

Vatnaskógur: Keppnir og dansleikur

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:0010. ágúst 2014|

Nokkrir af unglingunum í flokknum umbreyttu rými í óinnréttuðum hluta Birkiskála í dansgólf, fundu til tæki og tól til tónlistarflutnings og dönsuðu inn í nóttina í gær undir taktföstum takti frá dj sem kom úr hópi unglinganna.  […]

Vatnaskógur: Útilega eða kvikmyndakvöld

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:009. ágúst 2014|

Seint í gær héldu 9 ofurhugar ásamt starfsmönnum í útilegu í fjalllendinu austast í Svínadal og þegar þetta er ritað hefur hópurinn ekki skilað sér aftur í hús. Dagskrá annarra þátttakenda var rólegri en tók samt á, enda horfðum við saman [...]

Vatnaskógur: Rólegur dagur

Höfundur: |2019-10-11T14:20:58+00:008. ágúst 2014|

Eftir dagskrá miðvikudagsins töluðu margir þátttakendur um mikilvægi þess að taka það rólega í gær, fimmtudag, sem við og gerðum. Verkefni gærdagsins voru þannig í rólegri kantinum, bátunum var lokað vegna veðurs, en þess í stað buðum við upp á frjálsar [...]

Fara efst