Gauraflokkur byrjar vel
Það voru hressir strákar sem komu í Vatnaskóg í gær. Flokkurinn hófst á því að drengirnir settust við sitt borð og fundu sér síðan herbergi. Í hádegismatinn var fiskur, en mikið er lagt upp úr hollum og góðum mat í [...]
Sjálfboðaliðar á Sæludögum
Skógarmenn KFUM standa fyrir vímulausri hátíð fjölskylduhátíð um Verslunarmannahelgina undir heitinu Sæludagar í Vatnaskógi. Dagskráin er í anda sumarbúða KFUM og KFUK og höfðar til flestra. Sjálfboðaliðar á öllum aldri (15 ára og eldri) gegna mikilvægu hlutverki á hátíðinni og [...]
Sumarbúðablað KFUM og KFUK
Sumarbúðablað KFUM og KFUK með upplýsingum um dvalarflokka sumarið 2018 er komið út. Skráning í sumarbúðir félagsins hefst fimmtudaginn 1. mars kl. 13:00 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík og á vefnum á www.sumarfjor.is. Hægt er að [...]
Spennandi sumarvinna hjá KFUM og KFUK
Á hverju ári ræður KFUM og KFUK á Íslandi mikinn fjölda sumarstarfsfólks til starfa í sumarbúðum og á leikjanámskeiðum félagsins. Um er að ræða spennandi, gefandi og umfram allt fjölbreytt störf í Kaldárseli, Ölveri, Vatnaskógi, Vindáshlíð og á Hólavatni, ásamt leikjanámskeiðum [...]
Fjölskylduflokkur í Vatnaskógi 2.- 4. febrúar
Fjölskylduflokkur er frábært tækifæri að njóta þess að vera saman og efla fjölskyldutengslin í notalegu andrúmslofti. Í flokknum er boðið upp á frábært umhverfi, afslappaða og uppbyggilega dagskrá. Starfsmenn Vatnaskógar hugsa vel um þátttakendur, bæði í fæði og dagskrá og [...]
Herrakvöld KFUM
Herrakvöld KFUM til stuðnings Birkiskála í Vatnaskógi verður haldið fimmtudaginn 2. nóvember og hefst kl. 19:00. Boðið verður upp á stórkostlegan mat og vönduð skemmtiatriði. Veislustjórar verða Benjamín Pálsson og Ögmundur Ísak Ögmundsson. Ari Eldjárn kitlar hláturtaugarnar. Karlakór KFUM undir [...]
Feðgaflokkur 2017
Senn líður að feðgaflokki í Vatnaskógi 25.-27. ágúst. Við hlökkum til að sjá þátttakendur í Skóginum góða. Á dagskrá verða íþróttir, gönguferðir, kvöldvökur, fræðslustundir og margt fleira. Mæting á staðinn Gert er ráð fyrir að flestir komi á milli [...]
Nú fer að koma að því! – Kvöldvaka sumarbúðanna
Kvöldvaka sumarbúðanna verður haldin í annað sinn þann 18. ágúst. Fjörið byrjar klukkan 19:00 á grasinu fyrir aftan Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28. Hoppukastalar, útileikir og andlitsmálning verða í boði að kostnaðarlausu. Sjoppan verður að sjálfsögðu opin og þar [...]
Unglingaflokkur
Þá er veisludagur í unglingaflokki þegar hálfnaður og ekki seinna vænna að skrifa smá frétt. Þessir dagar hafa verið dýrðlega góðir og eru bæði unglingar og starfsfólk sammála um að þeir hafi verið of fáir og allt of fljótir að [...]
Könnun vegna Sæludaga 2017
Takk fyrir þátttökuna í Sæludögum í Vatnaskógi nú í ár. Hér fyrir neðan er þjónustukönnun vegna Sæludaga. Vinsamlegast svaraðu spurningunum hér að neðan svo að Sæludagar að ári megi ganga enn betur. […]
Brottfarardagur í stúlknaflokki
Í dag er síðasti dagur stúlknaflokks í Vatnaskógi þetta árið. Stúlkurnar verða vaktar 30 mínútum seinna en venjulega, eða kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og morgunstund þar sem við munum sjá stuttmyndina „Áfram að markinu“, [...]
Veisludagur í Vatnaskógi
Dagurinn í gær var viðburðaríkur og endaði með fjörugu náttfatapartíi og kvikmyndakvöldi sem stóð fram yfir miðnætti, þannig að núna í morgunsárið fengu stúlkurnar að sofa út. Dagskrá verður með einföldu sniði fyrir hádegi, morgunverðarhlaðborð verður opið milli kl. 10-11 [...]
Snúrubrauð, útilega og önnur ævintýri
Það var að venju margt á dagskrá í Vatnaskógi í gær. Oddakotsferð með hermannaleiksívafi, þar sem vaðið var í Eyrarvatni. Skotbolti og leikjafjör í íþróttahúsinu, fótboltaspilsmót, heitir pottar og fín kvöldvaka þar sem Birkir foringi sagði frá lífi sínu sem [...]
Hástökk, grímugerð og Hungurleikar
Dagskráin gengur vonum framar í stúlknaflokknum hér í skóginum. Stúlkurnar eru jákvæðar og spenntar fyrir dagskránni og taka þátt af krafti í öllu sem boðið er upp á. Á dagskrá í gær voru m.a. hástökk, langstökk án atrennu, grímugerð, listasmiðja, [...]
Mikil gleði en örlítið of mikið fliss 🙂
Stúlknaflokkur sumarsins fer frábærlega af stað í norðaustanáttinni hér í Svínadal. Þar sem stúlkurnar eru aðeins 24 höfum við lagt minni áherslu á fjölbreytt val en lagt þeim mun meira í þá dagskrá sem boðið er upp á. Í gær [...]
Starfsfólk í stúlknaflokki
Stúlknaflokkur Vatnaskógar hófst í dag. Á svæðinu verða 24 stúlkur og rúmlega 10 starfsmenn á öllum aldri. Foringjar í stúlknaflokki sem annast dagskrá og umönnun stúlknanna eru Birkir Bjarnason, Gríma Katrín Ólafsdóttir, Hrafnhildur Emma Björnsdóttir og Dagur Adam Ólafsson. Eldhúsi og þrifum er stýrt [...]
Brottfarardagur
Í dag er síðasti dagur 8. flokks þetta árið. Drengirnir verða vaktir 30 mínútum seinna en venjulega, eða kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og morgunstund þar sem við munum sjá stuttmyndina „Áfram að markinu“, en [...]
Sól og vatnafjör
Það var mikið fjör á Eyrarvatni í gær. Eftir hádegismat var drengjunum leyft að vaða og synda í vatninu, auk þess sem boðið var upp á víðavangshlaup kringum vatnið (4,2 km), málmleit og margt fleira. Flestir drengjanna nýttu sér tækifærið [...]